Betur má ef duga skal - Ályktun frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki fagna því að velferðarráðherra hefur ákveðið að tryggja rekstur endurhæfingar við stofnunina, svo ekki þarf að koma til lokunar eins og í stefndi. Samtökin vilja minna á að þetta er aðeins einn áfangi í þeirri baráttu sem staðið hefur nú um nokkurt skeið og lýtur að því að tryggja rekstrar- og þjónustugrundvöll Heilbrigðisstofnunarinnar.
Ekki hefur enn fengist leiðrétting á fjármagni til hjúkrunarrýma, en samkvæmt skýrslu sem Capacent vann í nóvember s.l., er fjármagn til hjúkrunarrýma vanreiknað samanborið við önnur landssvæði.
Hollvinasamtökin hvetja alla Skagfirðinga til að halda áfram baráttunni svo stofnunin geti staðið undir þeirri þjónustu sem henni er ætlað að veita. Mikilvægi góðrar og traustrar heilbrigðisþjónustu í heimabyggð er öllum ljós og Hollvinasamtök stofnunarinnar munu áfram vinna ötullega að því að tryggja starfsemi hennar.