Bílakaffi í tilefni nýrrar heimasíðu
feykir.is
Skagafjörður
27.08.2015
kl. 09.42
Í tilefni þess að Samgönguminjasafnið í Stóragerði í Skagafirði er að opna nýja heimasíðu, www.storagerdi.is, verður kaffihlaðborð sunnudaginn 30. ágúst frá kl. 14-17, í safninu.
Jón Stefán frá Miðhúsum kemur og spilar á harmónikkuna sína milli kl. 15 og 16. Kaffihlaðborðið kostar 1600 krónur og frítt er fyrir 12 ára og yngri. „Taktu sunnudagsrúntinn til okkar, sjáumst hress og kát,“ segir í tilkynningu frá safninu.
Hægt er að fylgjast með viðburðum safnsins á fésbókarsíðunni Samgönguminjasafn Skagafjarðar.