Bíll blaðamanns dældaður
Á meðan blaðamaður Feykis fylgdist með leik Tindastóls og Stjörnunnar í gærkvöldi reyndi einhver að leggja í bílastæði við hlið bíls hans á planinu við heimavist FNV en hefur ekið í hliðina á bílnum þannig að talsvert sér á. Verra var að ökumaðurinn lét ekki vita af óhappinu og er óskað eftir því að viðkomandi, eða vitni að atburðinum, hafi samband við blaðamann eða lögregluna á Sauðárkróki.
Að sögn lögreglunnar á fólk að vera ófeimið við að láta vita þegar svona óhöpp eiga sér stað því það eru viðkomandi tryggingafélög sem greiða fyrir viðgerðir og sá sem valdur er að tjóninu lækkar ekki í bónus. Ef ekki er látið vita þá situr tjónþolinn í súpunni.
Óhappið varð á miðju bílaplaninu við heimavist FNV á milli kl. 19 og 21 í gærkvöldi en þar voru bæði þrengsli og myrkur að gera ökumönnum erfitt fyrir. Bíllinn sem ekið var á er himinblá Mazda CX5, jepplingur, og stóð á miðju planinu.
Það væri því frábært ef ökumaðurinn, eða vitni að óhappinu, hafi samband í síma 455 7175 eða setji sig í samband við lögregluna.