Birta frá Laugardal hlaut góðan dóm

Síðsumarssýning Sauðárkróki fór fram í vikunni sem leið. Voru 54 hross skráð á sýninguna. Þar af hlutu 29 hross fyrstu verðlaun. Efst þeirra var gæðingurinn Birta frá Laugardal sem sýnd var af Magnúsi Braga Magnússyni.

Birta hlaut 8.82 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,49. Þar af hlaut hún 9,5 fyrir brokk og vilja og geðslag og þrjár níur.

Faðir Birtu er Aris frá Akureyri og móðir Brá frá Laugardal og er þetta fyrsta afkvæmi Bráar sem fer í 1 verðlaun og það þriðja undan Aris, að því er sagt er á vefnum hestafréttir.is.

Dómana í heild ásamt öðrum upplýsingum um sýninguna og hrossin sem sýnd voru má finna á hestafréttir.is.

Fleiri fréttir