Bjarmi afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga neyðarbúnað
Lionsklúbburinn Bjarmi afhenti nú í dag Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga neyðarbúnað sem nota á ef til þess kemur að sinna þurfi hópslysi. Í ljós kom eftir sameiginlega hópslysaæfingu í Víðidal nú í haust að nokkuð vantaði á þann búnað sem stofnunin hefur yfir að ráða. Leitað var til ýmissa félagasamtaka í héraði um að styrkja búnaðarkaupin.
Lionsklúbburinn Bjarmi kom á mjög myndarlegan hátt að þessu verkefni og afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga í dag ýmiss konar búnað til notkunar á vettvangi hópslysa alls að verðmæti um 300 þúsund krónur. Fram kom í máli stjórnenda stofnunarinnar að nú væri stofnunin vel búin til að takast á við stórt útkall þó svo að vonandi komi ekki til þess. Færðu þau félögum í Bjarma innilegar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning.
Að öðrum ólöstuðum hefur Hólmfríður Berentsdóttir deildarstjóri starfað ötullega að þessum búnaðarkaupum fyrir hönd stofnunarinnar. Allmargir félagar í Lionsklúbbnum Bjarma mættu við afhendinguna til að skoða búnaðinn og var virkni hans reynd á nokkrum þeirra.
/PSB