Bjarni Jónasson og Randalín sigruðu í töltinu

Þá er frábærri töltkeppni lokið í KS-Deildinni, en hún fór fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum í gærkvöldi. Sigurvegarar kvöldsins voru Bjarni Jónasson og Randalín frá Efri-Rauðalæk með einkunnina 8,56.

Næstir á eftir þeim voru Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási með 8,11, þriðji Þórarinn Eymundsson og Taktur frá Varmalæk með 7,89, þá Anna Kristín Friðriksdóttir og Glaður frá Grund með 7,67 og fimmtu Barbara Wenzl og Dalur frá Háleggsstöðum með 7,56.

 

Fleiri fréttir