Björgvin Björgvinsson á ystu nöf - myndband
Björgvin Björgvinsson skíðamaður frá Dalvík, og nýjasta viðbótin við þjálfaralið skíðadeildar Tindastóls, lék í auglýsingu sem Hvíta húsið og Truenorth gerðu á dögunum fyrir skyr.is. Þá var honum var honum skutlað upp á fjallstoppa með einkaþyrlu og kvikmyndaður á leiðinni niður hlíðarnar.
Eins og sjá í meðfylgjandi auglýsingu náðust magnaðar kvikmyndatökur af Björgvini á fjallinu en samkvæmt heimildum Vísi.is var þyrlan útbúin með sérstakri myndavél sem er mikið notuð erlendis við tökur á skíðamyndböndum. Myndavélin er gædd þeim eiginleikum að hún helst stöðug þrátt fyrir að þyrlan sé á hreyfingu. Kom það sér vel þegar veður versnaði óvænt á tökudaginn og þyrlan hraktist undan hríðarstormi og versnandi skyggni.
Að lokum þurfti að fresta tökum þegar ísing settist á þyrluspaðana. Tökum var lokið daginn eftir og þegar uppi var staðið safnaðist mikið að flottu myndefni þrátt fyrir erfiðar aðstæður á köflum.
Á Vísir Sjónvarp má finna aukamyndefni í tengslum við gerð auglýsingarinnar.
http://www.youtube.com/watch?v=m7FbJpPrOUE