Bleiki dagurinn 2014 er í dag 16 október!

Fröken Fabjúlöss elskar bleikann, þetta er engum dulið!
Þessvegna bíður Frökenin iðandi í skinninu eftir hinum árlega bleika degi sem haldinn er í október á hverju ári. 

Á bleika deginum nefnilega nær Frökenin að slá tvær flugur í sitthvort höfuðið: Að vera eins bleik og mögulegt er, og á sama tíma- og þeim mun mikilvægara- fær hún að sýna í verki stuðning sinn í baráttunni við brjóstakrabbamein!

Í dag er Frökenin semsagt klædd í bleikann jakka með bleiku slaufunælunni í barminum, og blekri peysu, með bleika förðun skreytta bleiku slaufunni og með því heiðrar hún þær hetjur sem eru að berjast við þær vindmyllur sem krabbamein er, og elsku englana sem beðið hafa ósigur í þessari erfiðu baráttu!

Sýnum samhug og stuðning í verki- hugsum bleikt- berjumst eins og stelpur- stöndum vörð um "stelpurnar" okkar!!!

Bleika slaufan sem Frökenin skartar í dag! Bleika slaufan sem Frökenin skartar í dag!

Fleiri fréttir