Blómleg jólastemmning!
Fröken Fabjúlöss fyllist alltaf jólahlýju og dass af væmni þegar líða fer að jólum! Uppáhaldsiðja hennar um þetta leyti er að fylgjast með því þegar jólin byrja að ryðjast inn í fyrirtæki bæjarins og einn af hennar uppáhaldsstöðum á þessum tíma er Blóma- og Gjafabúðin!
Jólin eru svo sannarlega komin í Blóma-og Gjafabúðina, og eftir að Binný rúttaði upp úr jólakössum og lét sköpunargleðinni rigna yfir búðina þá er upplifunin að rölta sér inn í blómabúðina svona sirka svipuð og að arka inn í jólaþorp!
Fröken Fabjúlöss mælir með innliti í Blóma- og Gjafabúðina ef skortur á jólaskapi hrjáir sálina, Ebenezer Scrooge kæmist ekki ósnertur af jólaanda þaðan út!