Blönduskóli fær gjafir
Ýmsar gjafir hafa borist Blönduskóla undanfarnar vikur sem koma skólastarfinu og nemendum til góða. Á dögunum færðu velunnarar skólanum endurskinsvesti sem koma að góðum notum sérstaklega nú í skammdeginu þegar nemendur fara í heimilisfræði. Einnig hafa skólanum borist spilastokkar og stjörnusjónauki.
Annað árið í röð sendir SAMAN-hópurinn öllum börnum í 5. bekk á landinu spilastokk að gjöf en markmiðið er að hvetja til samverustunda fjölskyldunnar og á spilin eru prentuð heilræði til barna og foreldra sem undirstrika mikilvægi samveru fjölskyldunnar. Að baki heilræðum liggja niðurstöður vísindalegra rannsókna sem hugmyndafræði SAMAN-hópsins byggir á en hún er sú að samvera fjölskyldunnar sé ein besta forvörn sem völ er á.
Fyrr í vetur voru þrír fulltrúar frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness, Stjörnufræðivefnum og landsnefnd um ár stjörnufræðinnar 2009 þau Kristín Helga Schiöth, Ottó Elíasson og Sævar Helgi Bragason á leið um norðurland og hittu Þórhöllu skólastjóra Blönduskóla og afhentu henni stjörnusjónauka fyrir Blönduskóla, Húnavallaskóla og Höfðaskóla.
