Bókaútgáfan Merkjalækur í A-Hún sendir frá sér bók
Bókaútgáfan Merkjalækur er til heimilis á Merkjalæk í Svínadal í A-Hún, en bærinn Merkjalækur stendur við Svínadalsfjall milli Grundar og Geithamra. Það eru Sigurður H. Pétursson, fyrrum héraðsdýralæknir í A-Hún til 30 ára, og kona hans Ragnhildur Þórðardóttir sem eiga og reka útgáfuna.
Fyrir nokkrum árum gaf útgáfan út bókina Bræðravíg á Balkanskaga, sem er þýdd úr Esperanto. Paradísarstræti er önnur bókin sem útgáfan gefur út, þýdd úr þýsku af Sigurði og syni hans, Pétri M. Sigurðssyni. Bókin er prentuð í Litrófi og er 144 síður með mörgum myndum og fjórum landakortum.
Í Paradísarstræti segir Lena Grigoleit, austur-prússnesk bóndakona, sögu sína. Höfundur bókarinnar er Ulla Lachauer, þýsk blaðakona. Hún kom í þorpið, þar sem Lena bjó, árið 1989 eftir fall Berlínarmúrsins.
Fyrir tilviljun kemst hún í kynni við Lenu sem þá var ein eftir í þorpinu af fyrrum íbúum þess. Með Ullu og Lenu takast góð kynni og nokkrum árum seinna dvelur Ulla hjá Lenu í tvær vikur með upptökutæki og stílabók og afraksturinn er bókin Paradísarstræti.
Lena upplifir tvær heimsstyrjaldir og útlegð í 5 ár í Síberíu með fjölskyldunni. Hún kemst heim aftur. Lena hefur mikla frásagnarhæfileika og frásögn hennar er einlæg og sönn. Frásögnin snýst um hið mannlega án nokkurra stríðslýsinga á þessum miklu umróta- og stríðstímum sem Lena upplifir, sem skók alla Evrópu á 20. öld og gjörbreytti landakorti álfunnar.
Í bókarlok er vandaður eftirmáli um tilurð bókarinnar og sögu Memelhéraðs. Einnig eru í bókinni fjögur landakort sem sýna þróun landsvæðisins á 20. öld ásamt fjölda ljósmynda. Bókin varð metsölubók í Þýskalandi þegar hún kom út og hefur verið þýdd á nokkur tungumál.
Bókin er komin í sölu í mörgum verslunum á Höfuðborgarsvæðinu.
Einnig er hægt að panta bókina hjá útgefanda, Sigurði H. Péturssyni, í síma 557-2480 eða 892-3215 eða með tölvupósti í netfang sighp@emax.is. Kostar þá bókin 2.100 krónur með sendingarkostnaði./KSE