Boris Jeltsín færir eiganda sínum rjúpu í rúmið
Jóhann Jakobsson bóndi á Egilsá í Norðurárdal var færð gjöf í bólið á dögunum af kettinum sínum Boris Jeltsín. Kisinn uppátækjasami er söngvinn köttur eins og nafni hans og öflug veiðikló, segir á Rúv.is.
Jóhann vaknaði eldsnemma morgun einn dag í síðustu viku en þá hafði kisi gómað rjúpu, þvælt henni inn um glugga, í gegnum eldhús og borðstofu og sleppti henni í síðan í svefnherberginu. Þar vakti rjúpan upp og flaug um og skeit meðal annars á kodda bónda.
Jóhann gómaði fuglinn, fór með hann út og flaug sú hvíta alglöð út í frelsið en ekkert rjúpunni hafði ekki orðið meint af þrátt fyrir að vera nýveidd. Þá spurði Jóhann sjálfan sig hvernig skaparinn launaði svona guðsþakkarverk og viti menn, hann mætti manni í Lýtingsstaðahreppi síðar sama dag og gaukaði sá að honum nokkrum rauðmögum.