Bræla á miðunum og ostaverksmiðja væntanleg
Vegna brælu er lítið um að vera hjá smábátasjómönnum í Skagafirði þessa dagana og hafa þeir ekki komið með afla að landi síðan 25. febrúar. Málmeyjan á leið í land með fullfermi úr Barentshafi.
Þær uplýsingar fengust hjá Sauðárkrókshöfn að Málmeyjan sé væntanleg í vikulokin með fullfermi en uppistaða aflans er þorskur úr norsku lögsögunni. Örvar landaði s.l. mánudag tæpum 145 tonnum þar sem þorskurinn var aðalaflinn og Klakkur kom með tæp 23 tonn að landi þar sem rækja var aðaluppistaða aflans eða um 17 tonn.
Um helgina er væntanlegt í Sauðárkrókshöfn risaflutningaskipið Hunteborg 114 metra langt en það er að koma með ostaverksmiðjuna sem Kaupfélagið keypti frá Svíþjóð fyrir nokkru.