Brekkugata sígur til austurs
Íbúar við Brekkugötu 1,3 og 5 á Sauðárkróki, en Brekkugata liggur til norðurs út frá Kristjánsklauf eða ofan við Hótel Tindastól, hafa sent umhverfis og samgöngunefnd Skagafjarðar erindi er varðar meint sig Brekkugötu til austurs.
Nefndin hefur samþykkt að fylgjast með svæðinu, mæla það og bera saman við fyrri mælingar tæknideildar.