Brennsluofn á sláturhús KS

Þann 1. júlí 2015 var samþykkt að auglýsa drög að breyttu starfsleyfi fyrir sláturhús KS á Sauðárkróki vegna starfrækslu brennsluofns. Á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra má lesa drögin að starfsleyfisskilyrðunum, en í þeim kemur fram að gert sé ráð fyrir brennsluofni til að sláturhúsið geti brennt eigin úrgang. 

Samkvæmt drögum heilbrigðisfulltrúa gildir starfsleyfið fyrir kjötvinnslu og slátrun á allt að 50 tonnum af skrokkum á dag og einnig til að starfrækja brennsluofn til að renna allt að 6 tonnum af eigin úrgangi á dag, en leyfi til þess nær til dýrahræja frá sláturhúsi KS en ekki frá öðrum. Beitt yrði bestu tækni sem fáanleg er til að koma í veg fyrir mengun umhverfisins en Heilbrigðisnefnd bæri ábyrgð á mengunareftirliti. Einnig yrði loftmengun frá starfsemi takmörkuð eins og kostur er.
Í drögunum er hægt að lesa um almenn ákvæði og gildissvið, varnir gegn mengun umhverfis, losunarmörk og sýnitöku og um eftirlit. Starfsleyfið gildir í 12 ár frá útgáfudegi. Hægt er að lesa þau í heild sinni hér.

Þeir sem telja sig málið varða eru hvattir til að kynna sér starfsleyfistillögurnar, en hægt er að senda athugasemdir til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra ef þurfa þykir. Skriflegar athugasemdir skulu hafa borist þangað í síðasta lagi þann 18. ágúst nk. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra er til húsa á Sæmundargötu 1 á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir