Breytingar á skipulagsskrá Fræðasjóðs Skagfirðinga

Á fundi menningar- og kynningarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær, voru málefni Fræðasjóðs Skagfirðinga til umræðu. Unnar Ingvarsson kynnti sjóðinn fyrir nefndinni, en hann var stofnaður árið 1961. Á dögunum bárust fréttir af því að sjóðurinn væri einn af þeim sjóðum sem ekki hefði skilað ársreikningum í langan tíma, en síðasta ársreikningi Fræðasjóðsins var skilað 1988.

Nefndin telur að taka þurfi afstöðu til þess hvernig haga skuli umsjón sjóðsins á komandi árum, eins og segir í fundargerð, en samkvæmt skipulagsskrá hans skal hann vera í umsjón stjórnar Héraðsskjalasafns og honum ætlað að styrkja skagfirskt fræðastarf.

Unnari var falið á fundinum að vinna tillögur að breytingum á skiplagsskrá sjóðsins, sem hafi það markmið að færa stjórn hans í hendur Sögufélags Skagfirðinga.

Fleiri fréttir