Bríet Lilja og Pétur Rúnar bestu leikmennirnir
Lokahóf meistaraflokka Tindastóls í körfu, unglinga-, drengja- og stúlknaflokks var haldið sl. miðvikudag. Reiddur var fram matur og iðkendur lögðu fram skemmtiatriði. „Var þetta hin fínasta skemmtun en hápunktur kvöldsins var að sjálfsögðu þegar kom að verðlaunaafhendingum,“ segir í fréttatilkynningu en um 70 manns mættu á hófið.
Eftirtaldir fengu verðlaun:
Stúlknaflokkur:
- Besta ástundun - Bríet Lilja Sigurðardóttir
- Mestu framfarir - Hafdís Lind Sigurjónsdóttir
- Leikmaður ársins - Bríet Lilja Sigurðardóttir
Drengjaflokkur:
- Besta ástundun - Hlynur Freyr Einarsson
- Mestu framfarir - Pálmi Þórsson
- Leikmaður ársins - Hannes Ingi Másson
Unglingaflokkur:
- Besta ástundun - Sigurður Páll Stefánsson
- Mestu framfarir - Páll Bárðarson
- Leikmaður ársins - Viðar Ágústsson
Meistaraflokkur kvenna:
- Stigahæst - Bríet Lilja Sigurðardóttir
- Besti varnarmaðurinn - Bríet Lilja Sigurðardóttir
- Besta ástundun - Helena Þórdís Svavarsdóttir
- Mestu framfarir - Sunna Þórarinsdóttir
- Efnilegust - Linda Þórdís Róbertsdóttir
- Besti leikmaðurinn (kosinn af leikmönnum) - Bríet Lilja Sigurðardóttir
Meistaraflokkur karla:
- Stigahæstur - Darrel Lewis
- Besti varnarmaðurinn - Helgi Rafn Viggósson
- Besta ástundun - Ingvi Rafn Ingvarsson
- Mestu framfarir - Viðar Ágústsson
- Efnilegastur - Pétur Rúnar Birgisson
- Besti leikmaðurinn (kosinn af leikmönnum) - Pétur Rúnar Birgisson
Svavari Atla Birgissyni var afhentur bikar sem stigahæsta leikmanns félagsins frá upphafi í efstu deild og úrslitakeppni 3378 stig.
„Svavar lyfti bikarnum og skoðaði hann en skilaði honum svo aftur til formannsins og bað hann um að geyma hann að minnsta kosti í eitt ár í viðbót. Gamli refurinn hefur semsagt ekki sagt sitt síðasta með Tindastól.
Stjórn körfuknattleiksdeildar óskar iðkendum til hamingju með frábært tímabil og þakkar öllum þeim sem lögðu starfinu lið í vetur fyrir þeirra framlag í vetur. Áfram Tindastóll!,“ segir loks í tilkynningunni.
Ljósmyndir Stefán Jónsson.