Brosandi hér, brosandi þar, brosandi í gegnum öldurnar!
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
15.05.2025
kl. 12.00

Stemningin í Síkinu er engu lík og þar titraði allt og skalf í rúma þrjá tíma í gær. Sigurður Ingi fangaði stemninguna. MYND: SIGURÐUR INGI
Það var hátíðardagur á Króknum í gær, enda þriðji í úrslitakeppni sem ætti auðvitað að vera opinber frídagur í Firðinum fagra. Þar sem sól skein í heiði, hitinn nartaði í rassinn á sköflum í efstu skörðum og golan rétt dugði til að hreyfa við Tindastólsfánunum á Króknum þá var dúndur- og gleðistemning upp við Síki löngu áður en hleypt var inn í hús. Og leikurinn? Jú, sömu töfrarnir innanhúss og utan og úrslitin eins og við viljum hafa þau. Stólasigur 110-97 eftir hörkuleik.