Brosið bling-að!
Fröken Fabjúlöss skellti sér til Eyjólfs tannlæknis í gær sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema síður sé og lítið sem er glamúrös í sambandi við tannlæknaferðir. En þar sem Fröken Fabjúlöss er glingurpía mikil þá gjörsamlega sogast að henni fallegt bling!
Á milli þess sem tannsi boraði og brasaði fannst honum nefnilega tilvalið að benda glingurrófunni í stólnum hjá sér á skemmtilegheit sem hann býður uppá: Semelíusteinn á tönnina! Og dagur Fröken Fabjúlöss (sem fram að þessu hafði verið dimmur og grár sökum tannlæknahræðslu) varð alltíeinu bjartur og fagur!
Tíu mínútum og litlum 8 þúsund krónum seinna var Fröken Fabjúlöss komin með svo blingað bros að hún er hreinlega orðin street smart! Ekki nóg með það, heldur á steinninn víst að tolla eins lengi og elstu menn koma til með að muna hreinlega... Frk. Fab heyrði af einni glamúrgellunni, sem virðist vera heldur betur á undan sinni samtíð tískulega séð, sem er búin að vera með sama steininn í tönninni í 10 ár og enn situr hann sem fastast!
Við hér í tískuhorni veraldarvefsins erum algjörlega á því að pjattrófur Norðurlands fjölmenni til Eyjólfs tannlæknis og láti hann blinga brosið, og þessum meðmælum er smellt fram af skælbrosandi Fröken Fabjúlöss!