Búið að opna tjaldstæðið á Sauðárkróki

Tjaldstæðið á Sauðárkróki var opnað óvenju snemma þetta árið, eða á laugardaginn var. Þá höfðu þegar þrír gestir gist á tjaldsvæðinu, sem vanalega er opnað 15. maí.
„Hér í Skagafirði komu tjaldstæðin svo vel undan vetri að ákveðið var að frá og með deginum í dag er opið á tjaldstæðinu okkar á Sauðárkróki,“ segir í færslu á fésbókasíðu Tjöldum í Skagafirði.
Það er fyrirtækið Álfaklettur sem rekur tjaldstæðin í Skagafirði. Hildur Þóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Álfakletts, segir að það hafi að vísu ekki komið gestir á tjaldstæðið eftir að það var opnað, en í vikunni þar á undan hafi verið þrír gestir.