Búist við 150 unglingum í Vinnuskóla Skagafjarðar
Vinnuskóli Skagafjarðar byrjar sumarstörfin 6. júní n.k en á heimasíðu sveitarfélagsins er sagt frá því að búist er við a.m.k. 150 unglingar verði í Vinnuskólanum í sumar.
Unglingar í 9. og 10. bekkjum geta sótt um störf hjá fyrirtækjum sveitarfélagins en 7. og 8. bekkur sinnir hefðbundnum garðyrkju-og umhverfisstörfum. Allar nánari upplýsingar um laun, tímabil og reglur er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Ungmenni 16-18 ára sem sækja um störf á almennum vinnumarkaði en fá ekki vinnu, geta sótt um að komast í sérstakt átaksverkefni á vegum sveitarfélagsins. Það felur í sér að viðkomandi fær að lágmarki 6 klst.vinnu á dag í 6 vikur.