Búminjasafn opnað í Lindabæ í Sæmundarhlíð
feykir.is
Skagafjörður
25.06.2015
kl. 15.44
Næstkomandi sunnudag, 28. júní nk. Verður opnað búminja- og dráttarvélasafn í Lindabæ í Sæmundarhlíð. Í glæsilegri aðstöðu getur að líta fjölda gamalla dráttarvéla, bæði uppgerðar og óuppgerðar.
Það er Sigmar Jóhannsson, sem margir þekkja sem Simma póst, sem stendur að þessu merka einkaframtaki. Auk dráttarvélanna verða á safninu gömul hestaverkfæri og sitthvað fleira sem tilheyrir fornum búháttum.
Sýningin verður fyrst um sinn opin frá 13:00-17:00 alla daga, fram til 15. ágúst. Sæmundarhlíðarvegur er nr 762 eða eins og Simmi segir: „Bara að beygja hjá Staðarréttinni.“ Dagskrá opnunarinnar hefst kl. 14:00 og eru allir velkomnir.