Býður Svf. Skagafirði að kaupa eignir sjóðsins í sveitarfélaginu
feykir.is
Skagafjörður
19.10.2015
kl. 09.36
Íbúðalánasjóður hefur boðið Sveitarfélaginu Skagafirði til viðræðna um kaup á eignum sjóðsins í sveitarfélaginu. Fjórar fasteignir eru í eigu sjóðsins í sveitarfélaginu um þessar mundir.
Erindið var borið upp í bréfi frá Íbúðalánasjóði, dagsett 8. október 2015, á fundi byggðarráðs Svf. Skagafjarðar sl. fimmtudag. Í fundargerð segir að sjóðurinn býður til viðræðna um þann möguleika að sveitarfélagið kaupi eignir sjóðsins í sveitarfélaginu með það í huga að nýta þær, t.d. fyrir félagsleg úrræði sveitarfélaga þar sem það á við.
Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga.