Byggðasafn Skagfirðinga gefur út rit um miðaldakirkjur

Byggðasafn Skagfirðinga hefur gefið út ritið Miðaldakirkjur 1000-1318 en um er að ræða 1. hefti í ritröð sem Byggðasafnið hyggst gefa út til að kynna niðurstöður Skagfirsku kirkjurannsóknarinnar sem hefur farið fram á vegum safnsins.

Starfsmenn safnsins hafa um árbil unnið að rann­sókn­um á kirkjumunum og kristnum grafreitum í byggðum Skaga­­­­­­­fjarðar undir rannsóknarheitinu Skagfirska kirkjurannsóknin. Í ritinu er fjallað um þá hlið rannsóknarinnar, sem byggist á könnun og samanburði ritheimilda, örnefna og munnmæla og skoðað hvernig þau falla að niðurstöðum nýjustu fornleifarannsókna á elstu kirkjugörðum. Samkvæmt heimasíðu Byggðasafnsins er óhætt að fullyrða að margt hafi komið á óvart.

Höfundur er Sigríður Sigurðardóttir. Ritið er til sölu hjá Byggðasafninu, í Skagfirðingabúð, Safnbúð Þjóðminjasafns og víðar. Hægt er að panta ritið á bsk@skagafjordur.is.

Menningarsjóður Norðurlands vestra og Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga styrktu útgáfu ritsins.

Fleiri fréttir