Byggðasafn Skagfirðinga hlaut Íslensku safnaverðlaunin
Í dag voru Íslensku safnaverðlaunin afhent í 10. Sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum en verðlaunin féllu í skaut Byggðasafns Skagfirðinga. Sagt er frá þessu á fréttasíðu morgunblaðsins.
Á mbl.is segir að Sigríður Sigurðardórri, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga hafi af tilefninu sagt að verðlaunin feli fyrst og fremst í sér viðurkenningu á starfi þeirra og efli þau til dáða. „við höldum því ótrauð áfram,“ Ekki er heiðurinn eina rósin í hnappagat Byggðasafnið því verðlaunaféð nemur einni milljón króna og mu eflaust koma sér vel. Líkt og fram kemur í frétt mbl.is segir Sigríður að starfsemi Byggðasafnsins hafi gjörbreyst á þeim tæpu þremur áratugum sem liðnir eru síðan hún tók við stöðu safnstjóra. Það hafi verið hennar fyrsta verk að koma upp geymslu því á þeim tíma var ekki hægt að taka við fleiri munum vegna plássleysis en þá hafi sýningarhaldið aðeins falist í gamla torfbænum í Glaumbæ. Nú hefur sýningastöðum fjölgað sem og starfsmönnum.
Að sögn Sigríðar eru sækja um þrjú til fjögur þúsund gestir Minjahúsið á Sauðárkróki heim á ári hverju og í fyrra hafi yfir 40 þúsund gestir heimsótt Glaumbæ.