Byggðasafn Skagfirðinga hlýtur rúmlega 90 milljón króna styrk úr Vísindasjóði Bandaríkjanna

Byggðasafn Skagfirðinga, í samstarfi við hóp bandarískra vísindamanna á vegum þriggja þarlendra háskóla, hlaut nýverið rúmlega 90 milljón króna styrk (688 þús. dollara), úr Vísindasjóði Bandaríkjanna (þ.e. The National Science Foundation – NSF) til rannsókna á fornum kirkjugörðum og búsetumynstri í Hegranesi í Skagafirði.

Fornleifafræðingurinn John Steinberg frá University of Massachusetts í Boston (UMASS) var staddur í Skagafirði á dögunum og náði blaðamaður Feykis tali af þeim Guðnýju Zoëga mannabeinafræðingi og stjórnanda Skagfirsku kirkjurannsóknarinnar, í Minjahúsinu á Sauðarkróki þar sem þau voru að skipuleggja sumarið og fékk að vita allt það helsta um verkefnið og styrkinn.

„Vísindasjóðurinn er sambærilegur Rannís á Íslandi,“ útskýrir John, „sá eini sinnar tegundar í Bandaríkjunum og styrkir allar greinar vísinda og verkfræði í öllum ríkjum Bandaríkjanna, sem og rannsóknir bandarískra vísindamanna utan landsteinanna. Samkeppnin er því gríðarlega hörð og kröfur sem gerðar eru til umsóknaraðila þær mestu sem þekkjast.“

„Þetta verður mjög víðfeðm rannsókn á sögu Hegraness en við ráðgerum aðeins einn meiriháttar uppgröft í þessari lotu, kirkjugarðinn í Keflavík,“ segir Guðný í samtali við Feyki.

Ítarlegt viðtal við Guðný og John má lesa í Feyki sem kemur út í dag.

Fleiri fréttir