Byggðasafn Skagfirðinga og Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna í kynningarmyndbandi um söfn

Við tökur í Glaumbæ. Mynd: glaumbaer.is
Við tökur í Glaumbæ. Mynd: glaumbaer.is

Kvikmyndateymið MASH var á ferðinni í Skagafirði fyrir helgina þar sem það var við tökur í Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ á vegum Félags safna og safnamanna (FÍSOS) en félagið hefur ráðist í að gera kynningarmyndband um söfn. Myndbandið, sem verður frumsýnt í haust, er annað myndbandið sem FÍSOS lætur gera og er sjálfstætt framhald af myndbandi sem birt var á Safnadeginum, 18. maí síðstliðinn. Yfirskrift myndbandanna er „Komdu á safn!“ Frá þessu er sagt á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga.

 

Myndbandið sem um ræðir verður um tveggja mínútna langt og þræðir sig frá höfuðborginni yfir á Norðurland og endar á Húsavík. „Megin þema verður farartæki og samgöngur fyrr og nú. Með allskonar persónulegu tvisti,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Söfnin sem valin voru til að birtast í myndbandinu að þessu sinni eru Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ, Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri, Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði, Minjasafnið á Akureyri, Listasafnið á Akureyri og Hvalasafnið á Húsavík.

 

„Kvikmyndateymið, sem samanstendur af þeim Hannesi Einari Einarssyni, Matthíasi Bjarnasyni og Nikulási Hansen Daðasyni, annast handritagerð og myndatöku. Sæþór Már Hinriksson safnvörður í Glaumbæ var fenginn til að leika hlutverk í myndskeiðinu og verður gaman að sjá útkomuna í haust,“ segir á vef Byggðasafns Skagfirðinga.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir