Byggðasafn Skagfirðinga tekur við staðarvörslu á Víðimýri

Frá Víðimýri. Mynd/Byggðasafn Skagfirðinga.
Frá Víðimýri. Mynd/Byggðasafn Skagfirðinga.

Þjóðminjasafn Íslands hefur samið við Byggðasafn Skagfirðinga um að það taki við staðarvörslu á Víðimýri. „Kirkjan er ein af mestu djásnum Skagafjarðar frá gamalli tíð,“ segir á heimasíðu Byggðasafnsins. 

Víðimýrarkirkja er menningarsöguleg bygging og er í húsasafni Þjóðminjasafnsins. Hún er jafnframt sóknarkirkja. Í staðarvörslunni felast gæsla og gestamóttaka, umhirða og rekstur kirkju og annarra húsa á staðnum. Þ.m.t. þjónustuhúsa við bílaplan.

„Byggðasafnið hefur leyst staðarverði á Víðimýri af við gæslu og gestamóttöku á undanförnum árum og það lag mun haldast en frá og með 1. júní 2016 verður staðarvörður á Víðimýri, Einar Örn Einarsson, starfsmaður Byggðasafnsins,“ segir á vefnum.

Víðimýrarkirkja er opin kl. 9-18 alla daga frá 1. júní  til 31. ágúst. 

Fleiri fréttir