Byggðasafni Skagfirðinga veittur styrkur

Fornleifasjóður, safnasjóður og húsafriðunarsjóður hafa veitt Byggðasafni Skagfirðinga samtals 7,2 millj. kr. í styrki til fjögurra verkefna og reksturs. 


Fornleifasjóður veitti 3 millj. kr. til skagfirsku kirkjurannsóknarinnar, til áframhaldandi rannsókna á Seylu, og 500 þús. kr. til framhaldsskráninga strandminja.

Safnasjóður úthlutaði safninu 1,4 millj. til reksturs og 1,5 millj. kr. til munaskráninga.

Húsafriðunarsjóður styrkir Tyrfingsstaðaverkefnið um 800 þús. kr.

Fréttina er að finna inni á vef Byggðasafns Skagfirðinga.

 

Fleiri fréttir