Charlie Sheen á skíðum í Tindastól

Skíðasvæðið í Tindastól verður opið frá 10 til 16 í dag en á Facebooksíðu þess segir að það verði heldur betur fjör í dag því hægt verður að fara með þyrlu upp á Tindastólinn og skíða niður brekkurnar í boði Charlie Sheen. Öllum að óvörum mætti kappinn í Skagafjörð í gærkvöldi og hefur heldur betur heilast af landi og þjóð.

Segir á síðunni að Charlie hafi ákveðið að gefa fríar ferðir í samvinnu við Skíðadeild Tindastóls, fyrir þá sem vilja nýta sér þyrluna frá kl 13 til 15 í dag, það eina sem fólk þarf að gera er að mæta á staðinn og gamla regla fyrstir koma fyrstir fá er í heiðri höfð. Upplisýngar í síma 8999073.

Fleiri fréttir