Contalgenið spilaði ekki á Keflavík Music Festival

Skagfirska hljómsveitin Contalgen Funeral átti að stíga á stokk á Ránni í Keflavík í gærkvöldi en hættu við eins og margar aðrar sveitir og tónlistarmenn en Keflavík Music Festival fer nú fram í bænum eins og frægt er orðið í fjölmiðlum.  Á Fésbókarsíðu hljómsveitarinnar segir að hún hafi ákveðið að afboða komu sína vegna skipulagsleysi og skitu hjá stjórnendum hátíðarinnar.

Hátíðin fer fram í miðbæ Reykjanesbæjar á helstu skemmtistöðum bæjarins og á heimasíðu hennar segir að verslanir, veitingahús og bæjarfélagið verði með í stemmningunni þar sem fjölbreytileikinn ræður ríkjum.

„Þetta er í fyrsta skiptið sem blásið er til hátíðarinnar en verður án efa árlegur viðburður í bítlabænum. Hátíðin sem verður ein sú stærsta á landinu, er einnig gullið tækifæri fyrir nýja og óþekkta tónlistarsnillinga til að koma sér á framfæri, í bítlabænum fá allir tækifæri til að slá í gegn.“

Fleiri fréttir