Tröllabrúðusmiðja á bókasafninu á Króknum

Tröllabrúðugerð. MYND AF NETINU
Tröllabrúðugerð. MYND AF NETINU

Langar þig að búa til eignn tröllabrúðu? Næstkomandi mánudag verður Tröllabrúðusmiðja á Héraðsbókasafninu á Sauðárkróki en það er brúðulistakonan brjáðsnalla, Greta Clough frá Handbendi á Hvammstanga, sem stýrir smiðjunni sem er partur af dagskrá barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls. Þegar hafa Trollabrúðusmiðjur verið haldnar á Hvammstanga og Skagaströnd.

Í smiðjunni munu fá bornin að skapa furðuverur úr náttúrulegum og endurnýttum efnivið og sækja innblástur í íslenskar tröllasögur og þjóðtrú.

Smiðjan er ætluð krökkum á aldrinum 10-13 ára en yngri börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum. Námskeiðið fer fram í Safnahúsi Skagfirðinga 2. nóveimer kl. 16:30. Ókeypis er smiðjuna en hægt er að skrá sig hér >

 

Fleiri fréttir