Dæmdar rúmar 4,3 milljónir auk málskostnaðar
Mál Þorsteins Sæmundssonar, fyrrverandi forstöðumanns Náttúrustofu Norðurlands vestra, gegn Náttúrustofu var tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands vestra í lok aprílmánaðar.
Krafðist stefandi, Þorsteinn, þess að Náttúrustofa yrði dæmdi til að greiða honum bætur að fjárhæð 10.570.765 krónur með vöxtum og dráttarvöxtum.
Kröfur Þorsteins gegn Náttúrustofu voru í fjórum liðum: Vegna meintra vanefnda á að veita honum launað námsleyfi frá störfum árið 2013, vegna vanrækslu á að greiða iðgjöld til Starfsþróunarseturs háskólamanna, sem varð til þess að hann varð af námskeiðsstyrk frá sjóðum og loks krafðist hann miskabóta vegna framgöngu í sinn garð sem hann taldi til þess fallna að valda honum álitshnekki.
Dómstjóri Héraðsdóms Norðurlands vestra vék sæti í máli þessu og fól dómstólaráð Jóni Finnbjörnssyni héraðsdómara að fara með málið. Samkvæmt dómnum var Náttúrustofu Norðurlands vestra gert að greiða Þorsteini 4.370.000 krónum með vöxtum auk 1.200.000 króna í málskostnað. Er þar um að ræða 2 milljónir vegna missis námsleyfis, 2 milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar, en bág fjárhagsstaða stofnunarinnar þótti ekki næg ástæða til uppsagnar, og 370 þúsund vegna námskeiðsstyrks. Ekki var fallist á að stjórn Náttúrustofu né einstakir stjórnarmenn hefðu gerst sekir um meingerð og var miskabótakröfu því hafnað.