Dagskrá körfuboltabúða Tindastóls að verða klár
Á heimasíðu körfuknattleiksdeildar Tindastóls kemur fram að nú fari að líða að því að dagskrá Körfuboltabúða félagsins verði birt. Þá segir að um leið og það gerist og upplýsingar um kostnað verði komnar á hreint verið farið að taka á móti formlegum skráningum.
Þeir iðkendur sem þegar hafa skráð sig þurfa ekki að skrá sig aftur. Á heimasíðunni segir; „Aðeins er eftir að hnýta örfáa lausa enda varðandi körfuboltabúðirnar í sumar. Dagskráin er í fullri vinnslu og lítur hún dagsins ljós innan nokkurra daga. Innsetning upplýsinga um búðirnar er í fullum gangi og send verður út tilkynning um leið og byrjað verður að taka á móti skráningum.
Þeir heimakrakkar sem þegar hafa forskráð sig, þurfa ekki að skrá sig aftur.
Mikið af fyrirspurnum hefur borist frá aðkomufélögum og einstaklingum og ljóst að ásókn verður í körfuboltabúðirnar.“