Dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+

Það hefur varla farið framhjá neinum að Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Húnaþingi vestra dagana 24.-26. júní nk. Á kynningarfundi sem haldinn var í Félagsheimilinu Hvammstanga vegna mótsins mátti sjá að einhugur ríkir meðal heimamanna og eru þeir staðráðnir í að taka vel á móti fólki og gera helgina sem eftirminnilegasta. Þar kom meðal annars fram að aðilar í verslun og ferðaþjónustu stefna að því að lengja opnunartíma sína til að koma til móts við þarfir keppenda og gesta mótsins.

Nú er búið að birta dagskrá mótsins á vefsíðu UMFÍ með fyrirvara um breytingar. Dagskráin er sem hér segir.

Föstudagur 24. júní

  • Kl 14.00 – 19.00         Boccía
  • Kl 14.30 – 19.00         Hestaíþróttir
  • Kl 16.30 -  18.00         Frjálsar
  • Kl 20.00 – 22.30         Mótssetning og skemmtiatriði – Hvammsá

Laugardagur 25. júní

  • Kl 08.30 – 09.00         Morgunhreyfing og fyrrilestur
  • Kl 09.30 – 19.00         Golf
  • Kl 10.00 – 12.00         Sund
  • Kl 10:00 - 12:00         Jurtagreining
  • Kl 10.00 – 12.00         Starfsíþróttir
  • Kl 10.00 -  18.00         Bridge
  • Kl 11.00 – 12.00         Sýningarhópar
  • Kl 12.00 – 18.30         Badminton
  • Kl 13.00 – 16.00         Fjallaskokk opinn flokkur
  • Kl 17.00 – 19.00         Línudans
  • Kl 17.30 – 18.30         Sýningarhópar
  • Kl 21.00 – 23.00         Skemmtidagskrá - Hvammsá/ Búfjárdómar

Sunnudagur 26. júní

  • Kl 08.30 – 09.00         Morgunhreyfing og  fyrirlestur
  • Kl 09.30 – 12.30         Blak
  • Kl 09.30 – 13.00         Skák
  • Kl 09.30 -  11.30         Dráttavélaakstur
  • Kl 11.00 – 12.00         Sýningarhópar
  • Kl 09.30 – 14.00         Pútt
  • Kl 10.30 – 12.30         Þríþraut
  • Kl 12:00  - 14.00         Pönnukökubakstur/ Kökuskreyting
  • Kl 11.00 – 13.00         Starfsíþróttir
  • Kl 15.00 – 15.30         Mótsslit – Hvammsá

Nánari upplýsingar um keppnisgreinar og fyrirkomulag má finna á vefsíðu UMFÍ.

/Norðanátt

Fleiri fréttir