Dagur aldraðra á morgun

Á morgun uppstigningardag, sem jafnframt er Dagur aldraðra, verður messað í Sauðárkrókskirkju kl 11. Sönghópur F.E.B. í Skagafirði syngur í messunni. Það verður nóg að gera hjá Sönghópnum þennan dag því kl 15 verður hann með tónleika í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki.

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, ásamt kaffi og vöfflum. Söngstjóri er Jóhanna Marín Óskarsdóttir og þeir Skúli Jóhannsson og Þorbergur Skagfjörð Jósefsson munu syngja einsöng. Þá mun Ásdís Sigurjónsdóttir flytja ræðu. Aðgangseyrir er 1000 kr. en ekki tekið við kortum. Í auglýsingu er sérstaklega tekið fram að þeir sem þurfa að fá aðstoð í stiganum upp í Frímúrarasalinn verði aðstoðaðir.

Fleiri fréttir