Dagur leikskólans er í dag
Þann 6. febrúar ár hvert er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Á vef Félags leikskólakennara segir að 6. febrúar sé merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólabörn á Sauðárkróki syngja klukkan 10:15.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Á Sauðárkróki ætla leikskólabörn að heimsækja Skagfirðingabúð og syngja fyrir gesti klukkan 10:15. Pabbar og mömmur, afar og ömmur, frændur og frænkur ættu að gefa sér tíma, mæta í Skaffó og hlusta á ungdóminn.