Dagur nemenda á morgun í Grunnskólanum Austan Vatna
Nemendur í Grunnskólanum Austan Vatna mun á morgun fimmtudag halda hátíðlegan dag nemenda en dagskrá að því tilefni verður í skólanum á milli 13:00 og 14:20. Þá munu nemendur bjóða upp á nokkrar mismunandi smiðjur þar sem að tilgangurinn er að fræða / kenna gestum ýmislegt sem nemendurnir sjálfir hafa lært í skólanum.
M.a.: verður boðið upp á þrekhring, karamellugerð, andlitsskuggamyndagerð, föndur, dans og skák. Samhliða Degi nemenda þá verða verk nemenda í nýsköpun sýnd í skólanum. Skólinn hefur vakið mikla athygli fyrir metnaðarfullt og skipulagt starf sitt í nýsköpunarkennslu og gefst nú gestum tækifæri á því að sjá hvað nemendur í 5.-7. bekk hafa verið að gera í vetur. Sýningin verður á ganginum við hlið myndmenntarstofunnar.
Að loknum degi nemenda verður síðan danssýning í Höfðaborg klukkan 14:30. Þar munu nemendur skólans sýna hvað þau hafa lært á undanförunum tveimur vikum en Jón Þór Antonsson, danskennari, hefur verið við danskennslu í skólanum.