Dansleikir á Húnavöku

Bæjarhátíðin Húnavaka á Blönduósi verður formlega sett í kvöld, klukkan 18:30 fyrir framan Hafíssetrið í gamla bænum. Nóg verður að gera um helgina og hægt er að skoða dagskránna í heild sinni hér. Tveir frábærir dansleikir verða á hátíðinni, þannig að þeir sem hafa áhuga á að skella sér á ball, dansa og hafa gaman, ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. 

Á föstudagskvöldinu, 17. júlí, verður 16 ára ball í Félagsheimilinu á Blönduósi með því stórskemmtilega teymi; Steinda JR, Bent og félögum, en þeir ætla að halda uppi stuðinu frá kl. 23.00 - 03.00.

Á laugardagskvöldinu, 18. júlí, mun enginn annar en diskókóngurinn sjálfur Páll Óskar Hjálmtýsson troða upp í Félagsheimilinu. Hann mun halda uppi stanslausu diskóstuði frá klukkan 23.00 - 03.00 og fyrr um kvöldið kemur hann fram á kvöldvöku í Fagrahvammi og tekur nokkur vel valin lög fyrir hátíðargesti.

Aðgangseyrir á þessa viðburði er 3.000 krónur.

Fleiri fréttir