Dásamlegt dekur
Ein af uppáhaldsiðjum Fröken Fabjúlöss er að hampa hæfileikaríkum Skagfirðingum, enda er fjarðremban rótgróin hennar taktfasta Skagfirska hjarta. Ekki hefur Frk. Fab hingað til lent í vandræðum með að finna hæfileikafólk hérna í firðinum, en nýjasta uppgötvunin er hin ótrúlega hæfileikaríka nuddkona Þorgerður Eva Þórhallsdóttir!
Hæfileikasvið fólks er á mismunandi sviðum og sumir eru góðir í hlutunum á meðan öðrum virðist hafa verið gefin einhver ákveðin náðargáfa og það á við um Þorgerði! Fröken Fabjúlöss skellti sér í nudd til hennar í seinustu viku og er hægt að fullyrða að það sé besta dekur sem hún hefur upplifað seinustu mánuðina! Lúinn og lemstraður líkaminn fékk algjöra yfirhalningu og Þorgerður með það alveg á hreinu hvar þurfti að vinna meira á hlutunum án þess að þurfa að spurja nokkurn skapaðann hlut.
Þorgerður er með ótrúlega fallega og kósí aðstöðu í kjallaranum heima hjá sér og þar sem þessi valkyrja vinnur annarsstaðar á daginn, þá tekur hún fólk í nudd á kvöldin hvort sem það er svæðanudd sem fer fram í gegnum fæturna, eða allur líkaminn nuddaður. Fröken Fabjúlöss mælir eindregið með því að fólk kíki á hana Þorgerði eða bjalli í hana í síma 856-1812 og fái nudd hjá henni til að láta amstur dagsins líða úr líkamanum!