Die Ukrainiens með tónleika á Hvammstanga

Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens mun halda tónleika á Vertanum á Hvammstanga laugardagskvöldið 28. maí en hljómsveitin mun halda tvenna tónleika hér á landi. Fyrri tónleikarnir verða á skemmtistaðnum Faktorý föstudaginn 27. maí kl. 22 ásamt Orphic Oxtra og Caterpillarmen. Á tónleikunum á Vertanum mun Jón Ingvar Hjaltason hita upp fyrir hljómsveitina.

Í tilkynningu segir; „Die Ukrainiens kemur frá Dresden í Þýskalandi og tónlist þeirra hefur verið lýst sem athyglisverðri blöndu af Rússadiskó og Balkantónlist. Lög sveitarinnar eru ýmist þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraníu og öðrum austur evrópskum löndum sem og frumsamin lög. Tónleikar Die Ukrainiens þykja mjög kraftmiklir og dansvænir og minna um margt á austur evrópsk brúðkaup og/eða jarðarfarir.“

Hljóðdæmi má heyra hér

Fleiri fréttir