„Díselvélarnar eiga nokkur góð ár eftir,“ segir Helga
Að þessu sinni er það fyrirliði kvennaliðs KR í körfunni, Króksarinn Helga Einarsdóttir, sem gefur sitt álit á einvígi Tindastóls og KR. Helga segir að Stólarnir verði að mæta til leiks annað kvöld með andlega þáttinn í lagi. „Það skiptir engu máli hvað þú kannt í körfubolta ef hugurinn er ekki rétt stilltur,“ segir hún.
Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? -Mér líst vel á hana, þó að ég verði að viðurkenna að mér líður ekki vel þegar leikir milli þessara liða eru í gangi. Þarna eru tvö bestu lið landsins að mætast og bæði lið hafa svo sannarlega unnið fyrir sæti sínu í þessu einvígi um titilinn. Það er alveg ljóst eftir fyrsta leikinn að þetta verður erfitt fyrir Tindastól, sérstaklega ef að þeir eru búnir að missa tvo lykil leikmenn, en þessir drengir hafa klifið erfiðari brekku en þetta. Ég veit að þeir koma brjálaðir til leiks á fimmtudaginn og eiga eftir að bíta frá sér.
Hefurðu náð að fylgjast með gengi Stólanna í vetur? -Já, ég hef reynt að fara á alla leikina fyrir sunnan og þökk sé TindastóllTV að þá getur maður séð heimaleikina líka. Ég vil nýta tækifærið og þakka þeim sem standa að TindastóllTV, það er ótrúlegt verk sem er unnið í kringum það og ekki einungis Skagfirðingar sem nýta sér það heldur öll körfuboltahreyfingin.
Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með Tindastól í vetur, blandan í liðinu er einstök og þjálfari sem veit hvað hann er að gera með Kára sér til aðstoðar. Þessir ungu strákar eru tilbúnir að leggja mikið á sig, díselvélarnar eiga nokkur góð ár eftir og svo fer dýralæknirinn að skila sér heim frá Danmörku svo að framtíðin er björt í Skagafirðinum.
Hvað þurfa Stólarnir að varast? -KR liðið er það sterkt að ef að það á að einblína á að stöðva eitthvað eitt hjá þeim, þá opnast fyrir eitthvað annað sem þeir munu nýta sér. Því verður vörnin að halda á öllum stöðum vallarins. Strákarnir verða að stíga betur út en þeir gerðu á mánudaginn, voru einfaldlega étnir í frákastabaráttunni og þeir fyrir utan verða að hjálpa stóru mönnunum inn í teig. Síðast en ekki síst þarf andlegi þátturinn að vera í lagi því það skiptir engu máli hvað þú kannt í körfubolta ef hugurinn er ekki rétt stilltur.
Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Ég sagði í viðtali við karfan.is áður en einvígið hófst að ég vonaðist til að þetta færi í oddaleik í DHL og ætla að standa við það.