Dómaranámskeið um helgina
Dómaranámskeið í Körfuknattleik verður haldið á Sauðárkróki föstudag og laugardag, 20. - 21. janúar nk. Að námskeiðinu stendur Unglingaráð í samvinnu við KKÍ og verður það án endurgjalds.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls verður kennslan bæði bókleg og verkleg og ætlast er til þess að allir iðkendur í 10. bekk og upp að meistaraflokki taki þátt í námskeiðinu, enda litið á það sem hluta af uppeldi körfuknattleiksiðkenda hjá deildinni að þeir sæki dómaranámskeið. Sérstökum dómarahóp verður komið upp hjá í framhaldi af námskeiðinu sem skiptir því á milli sín að dæma á fjölliðamótum.
Námskeiðið verður einnig opið fyrir alla aðra, s.s. foreldra, meistaraflokksmenn og þá sem áhuga hafa á að rifja upp reglurnar og leggja körfuknattleiksdeildinni lið með því að dæma, því alltaf er þörf á hæfum dómurum í starfinu.
Drög að dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Laugardagur 20. janúar
Kl. 13 – 18 Bóklegur tími
Sunnudagur 21. janúar
Kl. 09 – 10 Skriflegt próf
Kl. 10 – 13 Verklegar æfingar í sal
Skráningar sendist á Karl Jónsson á netfangið: coachkarl@internet.is.