Domi tekur við Stólastúlkum í fótboltanum
Knattspyrnudeild Tindastóls kynnir með ánægju ráðningu á nýjum aðalþjálfara mfl. kvenna, Carlos Dominguez Requena, eða Domi eins og hann er jafnan kallaður. Það var því ekki leitað langt yfir skammt að þessu sinni en Domi og fjölskylda búa á Króknum en Domi á að baki 127 leiki í íslenska boltanum, ýmist með liði Tindastóls eða Kormáki/Hvöt..
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
LM2026 og HorseDay innsigla samstarf sumarsins
Það styttist í landsmótið á Hólum en það verður haldið 5. – 11. júlí. Eitt af því sem er nauðsynlegt á nútímamótum er miðlun upplýsinga en þar kemur HorseDay sterkt inn. Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um landsmótið á einum stað. Síðan er skemmtilegur möguleiki að áhorfendur geta tekið beinan þátt með því að gefa einkunnir í forritinu og borið saman við einkunnir dómara.Meira -
Undanúrslitin í körfunni hefjast í Síkinu í kvöld
Undanúrslitin í Bónus deild karla í körfubolta hefjast í kvöld þegar Íslandsmeistarar Stjörnunnar heimsækja Síkið. Þar bíða eftir þeim úthvíldir Tindastólsmenn og væntanlega klikkuð stemning. Partýtjaldið tekur á móti gestum frá kl. 17:00 í dag en þá er gert ráð fyrir vægri vestanátt, sólskini og tíu stiga hita – en hann verður örugglega miklu meiri í tjaldinu. Leikurinn hefst svo kl. 19:15 en húsið verður opnað kl. 18:00.Meira -
Það eru forréttindi að búa í Skagafirði | Sigurður Bjarni Rafnsson skrifar
Það eru forréttindi að búa í Skagafirði – það segi ég af eigin reynslu. Við fluttum hingað ég og hún Ingibjörg mín árið 2003, en hún starfar sem hjúkrunarfræðingur hjá HSN. Við vorum full væntinga um nýtt líf og ný tækifæri. Í dag, rúmum tveimur áratugum síðar, lít ég til baka með þakklæti. Hér höfum við alið upp þrjú börn sem hafa fengið að njóta þess að vaxa og dafna í öruggu og góðu samfélagi – frá leikskóla og upp úr. Hafa börnin okkar öll útskrifast hér úr framhaldsskólanum það er virkilega dýrmætt og eiginlega bara forréttindi að hafa þennan munað hér í firðinum fallega að börnin geti klárað skólagöngu sína heima.Meira -
Húnaþing vestra | Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta 2026
Á vef Húnaþings vestra má lesa: „Allt frá árinu 1957 hefur sumardagurinn fyrsti verið haldinn hátíðlegur í Húnaþingi vestra. Upphaflega var hátíðin haldin til fjáröflunar Fegrunarfélagsins fyrir gróðursetningu í sjúkrahúsgarðinum á Hvammstanga. Í dag er sá garður orðinn stór og þéttur skógur. Þó hátíðin hafi ekki verið með nákvæmlega sama sniði öll þessi ár hefur Vetur konungur þó alltaf afhent Sumardísinni veldissprotann og hafa þau verið klædd í búningana sem forvígiskonur hátíðarinnar saumuðu. Frá upphafi og til ársins 2022 hélt Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla) utan um hátíðarhöldin með aðstoð fjölskyldu sinnar og ýmissa félagasamtaka. Í ár ákvað starfsmannafélag leikskólans að taka þetta að sér og viljum við þakka þeim innilega fyrir að viðhalda þessum flotta og rótgróna viðburði í samfélaginu okkar.Meira -
Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Fornverkaskólinn í Skagafirði hefur hlotið Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu. Verðlaunin eru veitt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Að þessu sinni hlutu 30 verkefni frá 18 löndum viðurkenningu, en alls barst 261 umsókn frá 40 löndum.Meira
