Donni tekur á ný við kvennaliði Tindastóls!

Donni við undirritun samnings ásamt Svavari Viktorssyni hjá knattspyrnudeild Tindaatóls. MYND AF SÍÐU KNASSTPYRNUDEILDAR
Donni við undirritun samnings ásamt Svavari Viktorssyni hjá knattspyrnudeild Tindaatóls. MYND AF SÍÐU KNASSTPYRNUDEILDAR

Í gær kom tilkynning frá knattspyrnudeild Tindastóls þar sem tilkynnt var að Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, hefur verið ráðinn aðalþjálfari hjá meistarflokks kvenna og hefur undirritað þriggja ára samning við félagið. Donni þekkir að sjálfsögðu fótboltann á Króknum út og inn en hann hefur áður starfað hjá Tindastóli, þar sem hann var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna árin 2022–2025 auk þess að hafa þjálfað karlaliðið, ýmist sem aðal- eða aðstoðarþjálfari.

Verkefnið hlýtur að teljast spennandi að mörgu leyti enda liðið nú komið niður í neðstu deild og mikil vinna og uppbygging framundan með efnilegum ungum leikmönnum. „Með ráðningu Donna horfum við björtum augum til næstu ára og erum við mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi við hann um þriggja ára samning. Við teljum að reynsla hans, þekking á félaginu og metnaður muni nýtast liðinu og félaginu vel,“ segir í tilkynningunni.

Vitum hvað Donni hefur fram að færa

„Ég er gríðarlega ánægður með að hafa náð samkomulagi við Donna um að taka við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli,“ segir Jóhann Daði, formaður Knattspyrnudeildar Tindastóls „Donni er maður sem við þekkjum vel hér á Sauðárkróki og vitum hvað hann hefur fram að færa. Hann er metnaðarfullur þjálfari með mikla reynslu og þekkingu á leiknum, en ekki síður einstaklingur sem ég hef mikla trú á að sé rétti maðurinn til að leiða liðið áfram.

Frá okkar fyrstu samtölum fann ég fyrir miklum metnaði og vilja hjá honum til að taka þátt í því verkefni sem fram undan er. Við erum með skýra sýn á hvert við viljum stefna og ég tel að Donni sé rétti maðurinn til að hjálpa okkur að ná þeim markmiðum.

Ég er virkilega spenntur fyrir framhaldinu og því sem við ætlum okkur að byggja upp í kvennaknattspyrnunni hjá Tindastóli.”

Skemmtilegir tímar framundan

Ég er mjög ánægður með að koma aftur heim í Tindastól. Það eru skemmtilegir tímar framundan þar sem við ætlum að byggja aftur upp kvennaliðið á Sauðárkróki,“ er haft eftir Donna í tilkynningunni. „Það eru margar mjög spennandi stelpur að koma upp á næstu árum sem sýnir hvað yngri flokka starfið er gott.

Ég er þakklátur fyrir að það sé leitað aftur til mín og mér treyst fyrir þessu mikilvæga verkefni. Ég hlakka mikið til að hitta leikmennina og vinna með þeim að því að bæta sig á hverjum degi og að þær nái að hámarka sína getu. Áfram Tindastóll”

Donnir er boðinn hjartanlega velkominn til starfa hjá Tindastóli á ný!

Fleiri fréttir