Hjördís Halla og Hreindís Katla verðlaunaðar
Uppskeruhátíð Æskulýðsdeildar Skagfirðings var haldin 25. október í Tjarnarbæ þar sem veitt voru verðlaun fyrir tímabilið. Það voru þær Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Hreindís Katla Sölvadóttir sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Knapi ársins í unglingaflokki árið 2026 er Hjördís Halla Þórarinsdóttir en hún átti frábært ár. Hún sigraði tölt á WR Hólamóti Skagfirðings ásamt því að vera í 1.-2. sæti í fjórgangi og 2. sæti í fimmgangi. Á WR móti Léttis sigraði hún þrjár greinar. Á Landsmóti á Hólum komst hún í milliriðlaen hápunktur ársins var Ís-landsmeistaratitill í fimmgangi þar sem hún sigraði á Fáki frá Oddhóli.
Einnig voru tilnefndar; Arnheiður Kristín Guðmundsdóttir, Greta Berglind Jakobsdóttir, Sigríður Elva Elvarsdóttir og Sigrún Sunna Reynisdóttir. Farandbikar í unglingaflokki er gefinn af Höfðaströnd ehf. en þau gáfu bikarinn í minningu Símonar Inga Gestssonar.
Knapi ársins í barnaflokki 2026 er Hreindís Katla Sölvadóttir en hún stóð sig virkilega vel á árinu með Bárð frá Króksstöðum. Þau sigruðu meðal annars Félagsmót Skagfirðings þar sem þau hlutu 8.54 í einkunn, sigruðu þrjár greinar í Skagfirsku mótaröðinni og voru í 2.-3. sæti á WR Hólamóti Skagfirðings.
Einnig voru tilnefndar; Auður Fanney Davíðsdóttir, Brynja Rósanna Brynjólfsdóttir, Iðunn Alma Davíðsdóttir og Ólöf Una Pétursdóttir. Farandbikar í barnaflokki er gefinn af Syðra-Skörðugili.
Feykir óskar þessum fræknu knöpum til hamingju og Skagfirðingi til lukku með glæsilegt barna og unglingastarf. Hægt er að lesa meira um þetta á Facebook-síðu Skagfirðings. /hmj
