Stefnir í stærsta Hrekkjavökuball sögunnar á Hofsósi

„Föstudaginn 30. október mun fara fram Halloween ball Friðar 2026 í Höfðaborg á Hofsósi. Þetta er árlegur viðburður sem við erum alltaf með en þessi er sá stærsti sem við höfum haldið,“ segir Konráð Freyr Sigurðsson forstöðumaður Húss frítímans / Félagsmiðstöðvarinnar Friðar á Sauðárkróki þegar Feykir spurði hann í morgun út í Hrekkjavökuballið mikla.

Hann segir ballið vera fyrir 8.–10. bekkinga og í þetta sinn mæta gestir frá félagsmiðstöðvum á Blönduósi, Hvammstanga, Skagaströnd, Þelamörk, Grenivík og Fjallabyggð.

Hvernig verður dagskráin? „Dagskráin er rosaleg. Dj Kurtheisi mun byrja að trylla mannskapinn með einstakri snilld, næstir á dagskrá eru þeir SpriteZeroClan-menn og mun komast alvöru hiti í mannskapinn þar, svo mæta kóngarnir Úlfur Úlfur og þá mun þakið fara af Höfðaborg.“

Hafa ungmennin sjálf komið að undirbúningnum? „Hvert einasta ár þegar haldið er Halloween-ball í Höfðaborg þá sjá ungmenni úr Grunnskólanum austan Vatna um viðburðinn. Það breyttist ekkert þetta árið, sjá þau um hræðilega flottar skreytingar á salnum og uppsetninguna og ekki má gleyma hræðilega góðu sjoppuni sem er hluti af fjáröflun þeirra.“

Eru krakkarnir farnir að leggja mikinn metnað í hrekkjavökubúningana og hafið þið einhverjar vísbendingu um hvað verður vinsælast í ár? „Það er alltaf mikill metnaður fyrir búningum á Halloween ballinu, það verður mjög spennandi að sjá hvert þemað verður hjá þeim og með svona fjölda af ungmenni þá hljóta nú að vera einhver í sama búningunum – verður spennandi að sjá.“

Hvernig er áhuginn fyrir ballinu? „Áhuginn er svakalegur og er lokatala sem mun mæta 260 ungmenni. Þetta verður stærsta Halloween ball Friðar.“

Hvernig hefur félagsmiðstöðvastarfið í Skagafirði gengið í haust og hvað er fram undan? „Það hefur gengið vel. Við erum alltaf að bæta í og gera fleiri viðburði. Félagsstarfið hefur verið vel sótt og nú um daginn vorum við með 90 ungmenni á lan og gistinótt hér í Hús frítímans. Fram undan er stóra söngkeppnin okkar og jafnframt Jólaball Friðar.“

Hversu hræðilega skemmtilegt verður á Hofsósi á föstudagskvöldið? „ÞETTA VERÐUR HRÆÐILEGA SKEMMTILEGT – ÞVÍ GET ÉG LOFAÐ!“ öskrar Konni að lokum á Feyki í hástöfum.

Praktískar upplýsingar

  • Unglingarnir eru hvattir til að mæta í búningum á ballið en það er ekki skylda
  • Rúta fer frá Varmahlíð kl 18:50 (mæting 18:30)
  • Rúta fer frá Húsi frítímans á Sauðárkróki kl 19:00 (mæting 18:40)
  • Á ballinu verður sjoppa á staðnum og posi verður til staðar.
  • Að balli loknu fara rútur til baka á Krókinn og stoppar í Hús frítímans.
  • Einnig verður ekið í Varmahlíð og þá fer rúta í Fljótin eftir ball og stoppar einnig hjá Hólaafleggjara.
  • Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við SSNV og fyrirtæki í Skagafirði sem gerir það að verkum að viðburðurinn er ókeypis fyrir alla unglinga í 8.–10. bekk á Norðurlandi vestra

Ballið er hluti af Skúnaskralli SSNV – Dagskrá Skúnaskralls má finna hér > https://skunaskrall.is/

Það eru FISK Seafood, Tengill, Uppsteypa, Steinull, Vörumiðlun, Steypustöðin og SSNV sem styrkja viðburðinn og gera kleift að gera honum hátt undir höfði. „Við erum þeim virkilega þakklát fyir stuðninginn,“ segir Konni.

Fleiri fréttir