Drangey Festival í Skagafirði 27. júní

Blásið verður til nýrrar tónlistarhátíðar í Skagafirði síðustu helgina í júní í sumar. Að hátíðinni standa staðarhaldarar á Reykjum í samvinnu við sömu menn og bjuggu til tónlistarhátíðina Bræðsluna á Borgarfirði Eystra.

Tónleikarnir munu fara fram á útisviði á Reykjum í stórbrotinni náttúru þar sem Tindastóll, Grettislaug, Drangey og Atlantshafið mynda stórkostlega umgjörð. Meðal tónlistarmanna sem fram koma á hátíðinni eru Emiliana Torrini, Jónas Sigurðsson og Contalgen Funeral og viðræður standa yfir við fleiri.  Hátíðin hefur fengið nafnið Drangey Festival – þar sem vegurinn endar.

Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar, hjá Viðburðaríkt ehf., sem er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar mun tónleikarnir fara fram laugardagskvöldið 27. júní og spilað verður þar til sólin kemur upp. Selt verður inn á svæðið á Reykjum og innifalið í miðaverði verður aðgangur að tjaldstæði og Grettislaug. Miðasala hefst á miði.is 4. maí og verður takmarkaður fjöldi miða í boði. Markmiðið með hátíðinni er að fólk á öllum aldri eigi saman góða kvöldstund með góðri tónlist í fallegu umhverfi. Hátíðina skipuleggja auk Áskels Heiðars þeir Viggó Jónsson hjá Drangeyjarferðum, staðarhaldari á Reykjum og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson hjá Sviðsljósum ehf. sem hefur annast sviðshönnun og lýsingu á áðurnefndum Bræðslutónleikum frá upphafi.

Áskell Heiðar segist lengi hafa átt sér þann draum að búa til tónlistarhátíð í Skagafirði.  „Nú er ég búinn að finna þessari hugmynd þessa glæsilegu umgjörð á Reykjum, fæ að gera þetta með frábæru fólki og við erum búin að bóka tónlistarfólk í fyrsta klassa, við hlökkum mikið til takast á við þetta verkefni og vonum sannarlega að Skagfirðingar, nærsveitungar og aðrir taki þessu vel og mæti.“

Áskell Heiðar segir hátíðina verða haldna í góðri samvinnu við skagfirsku bæjarhátíðina Lummudaga og Landsbankamótið, sem fram fara í Skagafirði þessa sömu helgi. „Við sjáum þetta sem góða viðbót við þá uppbyggingu sem hefur verið hér þessa helgi og vonum að þetta verði til að efla enn frekar menningarlíf og ferðaþjónustu í firðinum“, sagði Áskell Heiðar í samtali við Feyki í gær.

Fleiri fréttir