Drangey í 3.deild

Tvö knattspyrnulið verða gerð út í meistaraflokki hjá Ungmennafélaginu Tindastóli þetta árið. Tindastóll leikur í 1. deild en Siglingaklúbbinn Drangey í þeirri þriðju. Nafn Þryms sem áður lék í 4. deild hafði verið nefnt sem mögulegt lið í þessu verkefni en á heimasíðu Tindastóls segir þegar allt kom til alls var nafnið dottið út úr kerfinu.

Segir á vefsíðunni að brugðið hafi verið á það ráð að hafa samband við Siglingaklúbbinn Drangey sem er staðsettur á Sauðárkróki og tók stjórn félagsins erindinu afar vel.  Hið nýja knattspyrnulið mun því leika undir nafni Siglingaklúbbsins Drangeyjar.

Fleiri fréttir