Drengjaflokkur Tindastóls tekur á móti Skallagrím í kvöld

Drengjaflokkur körfuboltadeildar Tindastóls tekur á móti Skallagrími í Íslandsmótinu í Síkinu í kvöld kl. 18. Leikurinn átti upphaflega að vera á laugardaginn en var frestað.

Strákarnir eru í 2. sæti A-riðils með sjö sigra í átta leikjum, samkvæmt heimasíðu Tindastóls. Njarðvíkingar eru á toppnum með sjö sigra í jafnmörgum leikjum. Skallagrímur eru í 6. sæti riðilsins með 8 stig, en Tindastóll sigraði þá 93-75 í haust í Borgarnesi.

 

Fleiri fréttir